Aðalfyrirlesari á bahá'í sumarskólanum í ár verður Rainn Wilson. Hann er þekktur fyrir leik sinn í sjónvarpsþáttunum "The Office." Skráning á skólann, sem verður haldinn í Reykhólaskóla dagana 14.-18. júní, stendur nú yfir. Fólk er hvatt til að skrá sig með góðum fyrirvara og er síðasti skráningardagur 31. maí. Meginþema skólans er Bahá'u'lláh, líf Hans og opinberun, í ljósi þess að tvö hundruð ár verða liðin frá fæðingu Hans í ár.
Eins og venjulega verður dagskrá fyrir alla aldurshópa - börn, ungmenni og fullorðna. Enn er verið að leita að einstaklingum til að taka að sér ýmis þjónustuverkefni á skólanum. Eru þátttakendur því beðnir að íhuga hvort þeir geti lagt eitthvað af mörkum.