Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Friðarsýn: Sögur frá Kongó


14. febrúar 2018 Höfundur: siá
Nágrannar drekka kaffi saman

Nágrannar drekka saman kaffi

KINSHASA, Kongó, 16. janúar 2018, (BWNS) — Sólin kemur upp í þorpinu Ditalala í Kongó og ilmurinn af nýlöguðu kaffi fyllir loftið. Þorpsbúarnir hafa haft þann sið mann fram af manni að drekka kaffi, sem þeir rækta sjálfir, áður en þeir fara í vinnuna á búgörðunum.

Á síðastliðnum árum hefur þessi morgunsiður öðlast dýpri merkingu. Margar fjölskyldur í þorpinu hafa boðið nágrönnum sínum að drekka með sér kaffi og fara með bænir áður en dagsverkið hefst.

Þorpsbúar biðjast fyrir saman áður en haldið er til vinnu

Þorpsbúar biðjast fyrir saman áður en haldið er til vinnu

“Þau hafa umbreytt þessari einföldu athöfn að fá sér kaffi á morgnana,”segir gestur sem heimsótti þorpið Ditalala nýlega. “Þetta var svo sannarlega samfélagsstarfsemi sem jók einingu í þorpinu. Vinir úr nærliggjandi húsum komu saman á meðan verið var að hella upp á, til að fara með bænir og fá sér svo kaffisopa, kátir í bragði og ræddu málefni samfélagsins. Það skapaðist mikil samstaða.”

Það hafa verið vopnuð átök í meira en eina öld í Kongó. Talið er að í síðustu styrjöld sem háð var frá 1998–2002 hafi 5.4 milljónir manna látist, sem gerir hana að mannskæðustu átökum frá Seinni heimstyrjöldinni. Á síðustu tveimur árum hafa hvergi eins margir farið á vergang vegna styrjaldarátaka – samkvæmt skýrslu Sameinuðu þjóðanna flýðu um það bil 1.7 milljón landsmanna heimili sín vegna ótryggs ástands fyrstu sex mánuði ársins 2017.

Samt eru samfélög um allt land sem eru að læra að yfirstíga hefbundnar gjár milli fólks. Það leitast við, innblásið af kenningum bahá'í trúarinnar, að stíga framfaraspor bæði efnislega og andlega. Það lætur sig varða hagnýtar kringumstæður lífsins og stuðlar að bættum samskiptum fólksins, hvað varðar réttlæti, samstöðu, einingu og aðgang að menntun.

Kennari í skóla sem samfélagið rekur sjálft í Walungu, Kongó

Kennari í skóla sem samfélagið rekur sjálft í Walungu, Kongó

“Við erum að læra að búa til svæði þar sem komum saman til að ræða kenningar Bahá'u'lláh um samfélagsuppbyggingu og eiga samráð um hvað við getum gert til að finna lausnir á þeim vandamálum sem við stöndum frammi fyrir,” útskýrir Izzat Mionda Abumba, sem hefur unnið árum saman að menntun barna og unglinga.

“Þegar allir fá aðgang að þessum svæðum, þá er ekkert sem aðskilur okkur—það er ekki lengur spurning um hverjir eru bahá'íar og hverjir eru það ekki. Við erum öll að lesa þessi rit og ræða um þau til að finna leiðir til að leysa okkar vandamál. Við fáum innblástur og leiðbeiningu úr þessum ritum og skilaboðum,” segir hann.

Tónlist er veigamikill þáttur í samfélagslífinu í Walungu

Tónlist er veigamikill þáttur í samfélagslífinu í Walungu

Fréttina í heild sinni (á ensku) og fleir myndir er hægt að skoða á vef Alþjóðlegu bahá'í fréttaveitunnar.