Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Fjórði meðlimur Yaran hópsins losnar úr fangelsi


16. febrúar 2018 Höfundur: siá

 

Vinir og fjölskylda taka á móti Saeid Rezaie þegar honum var sleppt úr fangelsi

Vinir og fjölskylda taka á móti Saeid Rezaie þegar honum var sleppt úr fangelsi

BIC NEW YORK, 16. febrúar 2018, (BWNS)—Saeid Rezaie, einn af sjö meðlimum hóps bahá'ía sem var í forystu fyrir bahá'íana í Íran, losnaði í dag úr fangelsi, eftir að hafa setið inni saklaus í tíu ár.

Saeid og sex félagar hans voru handtekin árið 2008 þegar ráðist var inn á heimili þeirra. Þau voru hluti Yaran hópsins (Vinirnir), sem annaðist grundvallarþarfir íranska bahá'í samfélagsins, andlegar og efnislegar. Hópurinn var myndaður með vitund og án sýnilegrar andstöðu yfirvalda, eftir að því var lýst yfir á níunda áratug tuttugustu aldar að bahá'í stofnanir væru ólöglegar í Íran. Saeid er fjórði meðlimur hópsins sem hefur nú verið sleppt úr haldi. Nánar á vef Bahá'í World News Service.