Bahá'íar á Suðurlandi og Vesturlandi héldu umdæmissamkomu og hátíð í tilefni aukadaganna í þjóðarmiðstöð þeirra að Kletthálsi 1, í gær, laugardaginn 24. febrúar. Umdæmissamkomur eru haldnar á 3ja mánaða fresti. Þá koma bahá'íar saman til að ræða um útbreiðslu og styrkingu trúarinnar í sínu umdæmi. Að þessu sinni var rætt um málefni unglinga og ungmenna. Á fundinum voru líflegar umræður, sem nokkur bahá'í ungmenni tóku þátt í.
Um 50 manns sóttu aukadagahátíðina, sem haldin var í beinu framhaldi af umdæmisþinginu. Börnin, og sum hinna fullorðnu, mættu í grímubúningum.
Farið var í leiki, börnin lærðu að föndra og fengu andlitsmálningu. Fólkið gæddi sér á gómsætum veitingum sem bahá'íar úr ýmsum samfélögum á svæðinu buðu upp á.
Sérstaklega ánægjulegt var að fá gesti frá Afganistan í heimsókn. Aukadagarnir eru haldnir í lok febrúar og byrjun mars ár hvert. Þeir eru annað hvort 4 eða 5 talsins, eftir því hvort um hlaupár er að ræða eða ekki. Ayyám-i-Há, eða aukadagar, koma á undan síðasta mánuði ársins, sem er föstumánuður. Á aukadögunum eru bahá'íar hvattir til að gleðjast, sýna gestrisni og gefa gjafir. Á þessum dögum eiga bahá'íar líka að sinna mannúðarmálum.
Umdæmisþing og aukadagahátíð var haldin á sama tíma á Akureyri fyrir Norðausturland. Þar fór einnig fram kosning fulltrúa til árlegs landsþings, sem að þessu sinni verður haldið í maí. Meginhlutverk fulltrúanna er að kjósa nýtt andlegt þjóðarráð. Fulltrúakosningar standa nú yfir í ýmsum bahá'í samfélögum. Í nokkrum þeirra eru þær þegar afstaðnar.