Alþjóðlega bahá'í samfélagið BRUSSELS, 27. febrúar 2018, (BWNS)—Meira en 100 meðlimir Evrópuþingsins og þjóðþinga um alla Evrópu hafa undirritað yfirlýsingu þar sem þeir krefjast þess að bahá'í fangar í Jemen verði tafarlaust látnir lausir, þar á meðal Hamid bin Haydara, sem var dæmdur til dauða fyrr á þessu ári. Bréfið er stílað á yfirvöld Hútímanna, sem ráða yfir Sana'a, höfuðborginni.
Nú eru sjö bahá'íar í fangelsi í Sana’a. Þeim hefur verið neitað um lágmarks mannréttindi. Hamed bin Haydara er sá þeirra sem hefur verið lengst í haldi. Hamed var dæmdur til dauða af sérstökum refsirétti í Sana'a þann 2. janúar á þessu ári. Hann hefur setið í fangelsi frá desember 2013, þegar hann var handtekinn á vinnustað sínum án nokkurs tilefnis.