Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Hátíðarsamkoma í bahá'í þjóðarmiðstöðinni í tilefni af 9. degi ridván


18. apríl 2018 Höfundur: siá
Tjald Bahá'u'lláh stóð í miðjum garðinum

Tjald Bahá'u'lláh stóð í miðjum garðinum

Andleg svæðisráð bahá'ía í Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogi standa sameiginlega að hátíðarsamkomu í Bahá'í þjóðarmiðstöðinni, Kletthálsi 1, sunnudaginn 29. apríl kl. 4, í tilefni af 9. degi ridván hátíðarinnar. Ridván hátíðin er ein stærsta hátíð ársins meðal bahá'ía. Hún er haldin til að minnast yfirlýsingar Bahá'u'lláh árið 1863 í fallegum garði rétt fyrir utan Bagdað, en þá yfirlýsti Hann köllun sína í fyrsta sinn. Samkoman er opin öllum og það er enginn aðgangseyrir. Húsið opnar kl. 15:30. Tekið verður á móti gestum með léttum kaffiveitingum. Formleg dagskrá hefst kl. 16 með helgistund. Hafdís Ásgeirsdóttir flytur ræðu kvöldsins. Auk þess verður boðið upp á lifandi tónlistarflutning. Hápunktur kvöldsins hefst kl. 18 þegar skipts verður á kveðjum á netinu við bahá'ía bæði úti á landi og erlendis með myndspjalli. Að því búnu verður borinn fram kvöldverður.