Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Mótttaka í bahá'í miðstöðinni fyrir gesti og ræðumenn ráðstefnu sem haldin var í Norræna húsinu um umskurð drengja


20. apríl 2018 Höfundur: siá
Fulltrúar trúarhópa, sérfræðinga og embættismanna sem heimsóttu bahá'í miðstöðina

Fulltrúar trúarhópa, sérfræðingar og embættismenn í bahá'í miðstöðinni

Bahá'í samfélagið á Íslandi hélt móttöku í þjóðarmiðstöð sinni, Kletthálsi 1, fyrir ræðumenn og gesti sem sóttu afar vel heppnaða og málefnalega ráðstefnu um umdeilt frumvarp sem stendur til að leggja fyrir Alþingi varðandi bann við umskurði drengja.

Ráðstefnan var haldin í Norræna húsinu þann 17. apríl síðastliðinn af samráðsvettvangi trúarhópa í samvinnu við Háskóla Íslands. Bahá'í samfélagið er einn af stofnendum samtakanna. Meðlimum ríkisstjórnarinnar, ýmsum trúarhópum og sérfræðingum frá Íslandi, Evrópu og Ameríku var boðið á ráðstefnuna. Þó svo að bahá'íar hafi ekki ávarpað ráðstefnuna, gengdu þeir veigamiklu hlutverki við skipulagningu og undirbúning hennar. Ráðstefnan var sýnd í beinni útsendingu á vefnum.

Múslimar lögðu til matinn sem boðið var upp á í þjóðarmiðstöðinni. Móttakan—líkt og ráðstefnan sjálf— var háttvís og vinsamleg.

Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, var meðal gesta

Biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, var meðal gesta

Einn af íslensku gestunum var biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir. Þetta er, að því best er vitað, í fyrsta sinn sem yfirmaður þjóðkirkjunnar heimsækir bahá'í þjóðarmiðstöðina. Séra Jakob Rolland, kaþólskur prestur og formaður samráðsvettvangs trúarhópa var einnig meðal gesta, en hann var gestgjafi ráðstefnunnar. Auk þess mættu fulltrúar menningarmiðstöðvar múslima, samtaka múslima á Íslandi, búddhista (SG), ásatrúar, mormóna og moonista. Nokkrir meðlimir bahá'í samfélagsins voru einnig viðstaddir. Alþingismaðurinn og læknirinn dr. Ólafur Þór Gunnarsson, sem hélt ræðu á ráðstefnunni, var líka meðal gesta.

Margir tignir erlendir gestir sátu til borðs. Þar á meðal voru rabbíar ýmissa samtaka gyðinga á Norðurlöndum og í Bretlandi, auk imama og fræðimanna múslima og sérfræðinga á sviði læknisvísinda.

Sumir evrópsku gestanna hafa starfað innan samtaka sem láta sig varða samvinnu og vináttu ólíkra trúarhópa. Þeir þekkja til bahá'í trúarinnar og kenninga hennar. Þeir töluðu allir af mikilli virðingu og aðdáun um trúna og það starf sem bahá'íar um allan heim vinna til að auka skilning og samstarf trúarhópa.

Það er hvergi minnst á umskurð drengja í ritum bahá'í trúarinnar. Í öllum málum sem varða heilsu eru bahá'íar hvattir til að leita hæfra lækna og fylgja bestu þekkingu sem völ er á, á hverjum tíma. Þjóðarráð bahá'ía á Íslandi hefur bent fylgjendum trúarinnar á að það er ekki í anda trúarinnar að gagnrýna foreldra sem vilja láta umskera son sinn.