BAHÁ'Í HEIMSMIÐSTÖÐINNI, 20. apríl 2018, (BWNS) — Fyrir stuttu síðan var nýr hluti -section – opnaður á vefnum um tvö hundruð ára afmælið.
Nýi hlutinn inniheldur ýtarlegri upplýsingar—frá meira en 150 löndum og landssvæðum—um hátíðarhöldin sem haldin voru í tilefni af 200 ára afmæli Bahá'u'lláh. Ein af nýju síðunum fjallar um viðburði sem haldnir voru á Íslandi meðan á tvö hundruð ára hátíðarhöldunum stóð.
Gestir geta kynnt sér miklu meira efni, þar á meðal ljósmyndir, tónlist og myndbönd í ákveðnum löndum eða landssvæðum. Vefurinn endurspeglar bæði hve hátíðarhöldin voru hnattvíð og fjölbreytileg.
Vefnum var fyrst hleypt af stokkunum í september 2017. Hann inniheldur viðburði sem haldnir voru víða um heim, listsköpun artistic endeavors, greinar um líf og kenningar Bahá'u'lláh, opinberar yfirlýsingar frá þjóðarleiðtogum og embættismönnum, bréf letter frá Allsherjarhúsi réttvísinnar og heimildarmynd um líf Bahá'u'lláh. (Myndin er með íslenskum texta og heitir: “Ljós fyrir heiminn”)