BAHÁ'Í HEIMSMIÐSTÖÐINNI, 27. apríl 2018, (BWNS) — Í dag kom út á netinu online ný útgáfa ritsins For the Betterment of the World (Til að bæta heiminn) og var því einnig dreift til fulltrúanna á 12. alþjóðlega bahá'í þinginu í Ísrael, sem nú stendur yfir. Ritið fjallar um það þróunarstarf sem bahá'í samfélög um allan heim vinna að.
Skrifstofa félagslegrar og efnahagslegrar þróunar (the Office of Social and Economic Development) við Bahá'í heimsmiðstöðina gefur ritið út. Á meðal þess sem lagt er áhersla á í ritinu er að „allir íbúar jarðar ættu að geta notið ávaxta framsækins efnahagslegs og andlegs þjóðfélags,” og að „íbúar allra landa eiga rétt á og bera ábyrgð á því að þeirra þjóðfélög taki framförum.”
Ritið fjallar um ýmis þróunarverkefni sem bahá'íar vinna að um heiminn, svo sem á sviði menntunar, heilbrigðismála, landbúnaðar og efnahagslífs, listgreina og fjölmiðla og aukinna réttinda kvenna. Hægt er að nálgast ritið á vef Bahá'í heimsmiðstöðvarinnar bahai.org.