Árið 2017 voru 200 ár liðin frá fæðingu Bahá‘u‘lláh, opinberanda bahá'í trúarinnar. Í tilefni þess lét Andlegt ráð bahá'ía í Reykjavík útbúa námskeið um líf Hans og kenningar.
Námskeiðið er í átta hlutum. Fyrstu fjórir hlutarnir eru nú komnir inn á You Tube. Til að byrja með er hægt er að tengjast þeim á YouTube spilunarlistanum "Líf Bahá'u'lláh". Stefnt er að því að tengja fyrirlestrana inn á heimasíðu íslenska samfélagsins bahai.is.
Hægt er að senda fyrirspurnir um námskeiðið á netfangið: netkennsla [hjá] bahai [punktur] is.
Þetta er kjörið tækifæri til að kynnast Bahá'u'lláh, lífi Hans og kenningum.