Bahá'í sumarskólanum að Ljósafossskóla lauk í gær með fyrirlestri Bee McEvoy um mikilvægi pílagrímsferða. Bee deildi með þátttakendum bréfi frá Allsherjarhúsi réttvísinnar þar sem vinirnir eru hvattir til að sækja um pílagrímsferð. Nú hefur verið byggt stærra húsnæði til að hýsa pílagríma sem gerir bahá'íum fært að bjóða fjölskyldumeðlimum sínum með í för, hvort sem þeir eru bahá'íar eða ekki. Bee sýndi kvikmyndina “Pílagrímsför – heilög reynsla” sem er með íslenskum texta. Hægt er að horfa á myndina hér.