Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Fræðslumyndin "Víkkandi faðmur" er nú með íslenskum texta


17. ágúst 2018 Höfundur: siá
Fræðslumyndin Víkkandi faðmur er komin með íslenskan texta

Fræðslumyndin Víkkandi faðmur er komin með íslenskan texta

 

Búið er að setja íslenskan texta á fræðslumyndina "Víkkandi faðmur" (Widening Embrace), sem Allsherjarhús réttvísinnar, æðsta stofnun bahá'í trúarinnar, gaf út á þessu ári. 

Ef þú sérð ekki íslenska textann, þarftu að smella á merkið með þverrákunum (eða CC ef kerfið í tölvunni notar ensku), neðst á myndinni til hægri, til að kalla hann fram. Ef þú sérð ekki merkið þarftu að færa bendilinn yfir á myndina. Við það birtist heitið "Skjátextar" (eða subtitles/closed captions). Smelltu á merkið. Þá sérðu rautt strik undir merkinu, sem segir þér að textinn er nú virkur.

Fylgjendur Bahá’u’lláh og vinir þeirra um allan heim leggja sig alla fram við að stuðla að velferð samfélaga sinna og framförum þjóðfélagsins. Víkkandi faðmur veitir innsýn í og fjallar um þá reynslu sem fengist hefur í tilteknum byggðum og borgarhverfum, jafnt í strjálbýli sem þéttbýli. Þar er að þróast ferli við að byggja upp þróttmikil samfélög með aðgerðum sem byggja bæði á einstaklingsframtaki og samvinnu. Ferlið er knúið áfram af skuldbindingu við lærdóm sem hefur það að markmiði, með orðum Bahá’u’lláh, að „sýna í framkvæmd og verki það sem ritað hefur verið.“