Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Aukaefni við myndina Víkkandi faðmur kemur út

21. september 2018 Höfundur: siá
Þrjár stuttmyndir sem fylgja með heimildamyndinni Víkkandi faðmur voru birtar í dag á vefnum Bahai.org. Þessi mynd er af fólki úr samfélagi í Kongó, sem er eitt af þeim svæðum þar sem heimildamyndin var tekin.

BAHÁ'Í HEIMSMIÐSTÖÐINNI, 21. September 2018, (BWNS)— Aukaefni sem fylgir myndinni Víkkandi faðmur  sem kom út fyrir skömmu var sett inn á vefinn www.bahai.org  í dag.

Um er að ræða þrjár stuttmyndir sem sýna svipmyndir af þeirri samfélagsuppbyggingu sem bahá'íar og samskonar þenkjandi vinir þeirra um allan heim vinna að. Efnið er alls um 32 mínútur að lengd. Það fjallar um þrenns konar efni: að hlúa að yngri kynslóðinni, að efla getu unglinga, og um samfélög sem læra að standa saman til að vinna að framgangi íbúanna. Sjá hér.

(Stuttmyndirnar eru með enskum texta, en upprunalega myndin, Víkkandi faðmur, er aðgengileg með íslenskum texta, sem hægt er að kalla fram með því að smella á fyrsta táknið sem er undir myndinni, hægra megin.)