Bahá'í útgáfan hefur gefið út stórt og fallegt bahá'í dagatal fyrir árið 176 eB (2019-2020). Bábinn, fyrrennari Bahá'u'lláh, setti fram dagatalið í ritum sínum. Seinna staðfesti Bahá'u'lláh dagatalið og bætti við nokkrum atriðum.
Bahá'í dagatalið er talsvert frábrugðið venjulegu dagatali. Í hverjum mánuði eru 19 dagar og í byrjun hvers mánaðar er haldin samkoma sem nefnist 19 daga hátíð. Á hverju ári eru 11 helgidagar, þar af eru níu dagar þar sem bahá'íar taka sér frí frá vinnu. Nýtt ár hefst í mars, þegar föstumánuðinum lýkur. Á undan föstunni eru 4 til 5 aukadagar (eftir því hvort um hlaupár er að ræða eða ekki), sem ætlaðir eru til að gleðjast, sýna gestrisni og sinna mannúðarstörfum. Bahá'í tímatalið hófst með yfirlýsingu Bábsins, fyrirrennara Bahá'u'lláh, árið 1844.