BWNS (Alþjóðlega Bahá'í fréttaveitan), desember 2019. Fyrir einni öld skrifaði 'Abdu'l-Bahá töflu (bréf) sem varð þekkt undir nafninu Taflan til Hag. Í töflunni fjallar Hann um þær þjóðfélagsbreytingar sem þurfa að eiga sér stað til þess að alþjóðlegur friður geti orðið að veruleika. Til að minnast þessa atburðar hélt Bahá'í samfélagið í Niðurlöndum sérstaka minningarathöfn í þjóðarmiðstöð sinni í Hag. Bahá'í fréttaveitan útbjó stutt myndband um þessa frétt. Þar getur meðal annars að líta loftmyndir teknar með dróna af Bahá'í heimsmiðstöðinni í Haifa, Ísrael.