Dougals Martin, einn af fyrrverandi meðlimum Allsherjarhúss réttvísinnar, lést í gær, 28. september, 91 árs að aldri. Martin var mikilhæfur og afkastamikill fræðimaður og rithöfundur. Hann var brautryðjandi hér á Íslandi um tíma, en eiginkona hans Elizabeth var hér þó nokkru lengur. Martin heimsótti Ísland nokkrum sinnum og var mikill unnandi lands og þjóðar. Lesa má minningargrein Allsherjarhúss réttvísinnar um Martin hér
- Eðvarð T. Jónsson