Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Mikil ánægja með fjarfund meðlima stofnana trúarinnar á Íslandi


25. október 2020 Höfundur: siá

 

Andlegt þjóðarráð Bahá'ía á Íslandi boðaði til fundar með meðlimum stofnana trúarinnar hérlendis í gær. Fundurinn fór fram á zoom og tókst með miklum ágætum. Bahá'íar víðs vegar af landinu áttu samráð um málefni sem varða eflingu Bahá'í samfélaga og þau vandamál sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir vegna kórónufaraldursins. Þetta var mjög uppörvandi stund og þarna komu fram margar góðar hugmyndir. Meðfylgjandi mynd tók Naimy Banu á meðan á fjarfundinum stóð.