Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Guðrún Birna Hannesdóttir 85 ára


17. janúar 2021 Höfundur: siá
Greinin í Morgunblaðinu um Guðrúnu Birnu Hannesdóttur

Greinin í Morgunblaðinu um Guðrúnu Birnu Hannesdóttur

 

Í greininni er rakinn ævi Guðrúnar Birnu fram til þessa. Þar kemur meðal annars fram að hún gerðist bahá'í árið 1967 og er því meðal fyrstu núlifandi bahá'ía hér á landi. Þess er líka getið að hún var með nokkra útvarpsþætti um persnesku trúhetjuna, ljóðskáldið og kvenréttindakonuna Táhirih, sem var ein af 18 fyrstu fylgjendum Bábsins, fyrirrennara Bahá'u'lláh. Á ráðstefnu babía (fylgjenda Bábsins) varpaði Táhirih af sér andlitsblæjunni, sem tákn um hinn nýja tíma sem trú Bábsins boðaði. Þetta þótti mikið hneyksli á meðal karlmannanna og sumir áttu mjög erfitt með að sætta sig við þetta. Táhirih fórnaði síðar lífi sínu fyrir Bábinn. Síðustu orð hennar eru talin hafa verið: Þið getið tekið mig að líf hvenær sem ykkur þóknast, en þið getið aldrei stöðvað framgöngu kvenna.