Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

10000 trjáplöntur gróðursettar í Skógum í vor


21. mars 2017 Höfundur: siá

 

Vaxtarsproti lindifuru

Vaxtarsproti lindifuru

Myndin af þessum vaxtasprota lindifuru var tekin í Skógum í Þorskafirði í júní 2016. Lindifura (pinus cembra) er eins og aðrar furur sígrænt barrtré. Lindifura þekkist frá öðrum furum á því nálarnar eru 5 í knippi og eru langar og mjúkar. Elstu lindifurur á Íslandi eru í Grundarreitnum í Eyjafirði og í furulundi á Þingvöllum. Fræ lindifurunnar, furuhneturnar, eru bragðgóðar og næringarríkar og þess vegna eftirsóttar. Það var ekki fyrr en með tilkomu Skjólskóga sem farið var að reyna plöntun lindifuru á Vestfjörðum. Á skárri stöðum lifir hún góðu lífi en er afar hægvaxta. Á komandi vori verður plantað 10.000 trjáplöntum af ýmsum tegundum í skógræktargirðinguna í Skógum undir handleiðslu, ráðgjöf og í samstarfi við Skógræktina. Jörðin er í eigu bahá'í samfélagsins. Bahá'íar hafa unnið að skógrækt og uppgræðslu landsins um árabil.

(Fréttin er unnin upp úr pistli frá Böðvari Jónssyni)