Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Embættismenn og aðrir frammámenn í Landinu helga heiðra ‘Abdu’l-Bahá


13. janúar 2022 Höfundur: siá

 

 

BAHÁ’Í HEIMSMIÐSTÖÐIN — Embættismenn, diplómatar, frammámenn og leiðtogar trúarhópa-gyðinga, múslima, kristinna og drúsa—komu saman til að minnast þess að öld er liðin frá andláti ‘Abdu’l-Bahá og til að heiðra arfleifð hans í Landinu helga. Forseti Ísraels Isaac Herzog og borgarstjóri Haifa, Einat Kalisch-Rotem, fluttu ræður. Dr. Kalisch-Rotem lét einnig í ljós hve mikils hún metur Bahá’í heimsmiðstöðina og að hún hlakki til þess tíma þegar pílagrímar geta aftur heimsótt Haifa.

 

Gestunum bauðst að horfa á stuttmynd um líf og starf 'Abdu'l-Bahá í Landinu helga, sem nefnist Shelter for All Mankind.

 

Hægt er að skoða ljósmyndir og horfa á fréttamynd um atburðinn hér.