Loka

Not a member yet?Register now and get started.

lock and key

Sign in to your account.

Account Login

Helgidómur ‘Abdu’l-Bahá: Helgidómurinn sem er að koma í ljós er tákn um frið og þjónustu við mannheim | BWNS


21. mars 2022 Höfundur: siá

 

 

 

Eftir því sem vinnunni við helgidóm ‘Abdu’l-Bahá miðar áfram, minnast bahá'íar um allan heim knýjandi ákalls hans um alþjóðlegan frið, sérstaklega í dag, á naw-rúz, fyrsta degi vorsins og degi andlegrar endurnýjunar.

Þegar lokið verður við helgidóminn, mun hann gegna því hlutverki að vera staður hljóðlátrar íhugunar fyrir óteljandi gesti víðsvegar að úr heiminum til að fá innblástur af lífi og starfi ‘Abdu’l-Bahá sem frumkvöðuls friðar, baráttumanns fyrir félagslegu réttlæti og talsmanns fyrir hugsjóninni um einingu mannkyns.

Í einni af ræðu sínum meðan á ferð hans til Vesturlanda stóð, dró ‘Abdu’l-Bahá upp myndlíkingu af náttúrunni í tengslum við jafndægur á vori og sagði: “Megið þið verða eins og vaxandi plöntur. Megi ný lauf og fjölbreytileg blóm springa út á trjám hjartna ykkar. Megi dásamlegir ávextir koma í ljós á þeim til þess að heimur mannsins, sem hefur vaxið og þróast hvað efnislega siðmenningu varðar, megi örvast til að birta andlegar hugsjónir.” (óendurskoðuð þýðing)

Nánar hér.